Fréttir
  • 112 dagurinn lógó

Einn-einn-tveir dagurinn er í dag 11.2.

Almannavarnir eru þema 112-dagsins

11.2.2016

112-dagurinn er haldinn um allt land í dag og er sjónum að þessu sinni beint að almannavörnum. Áhersla er lögð á viðbúnað og viðbrögð almennings. Neyðarnúmerið 112 á auk þess afmæli í dag og er 20 ára. Haldið verður upp á afmælið kl. 16 í bílageymslu SHS í Skógarhlíð.

112-blaðið fylgdi Fréttablaðinu í dag.

Úr fréttatilkynningu:

Aðstandendur dagsins fræða almenning um almannavarnir og er sérstök áhersla lögð á að fjalla um viðbúnað og viðbrögð almennings við náttúruhamförum á borð við jarðskjálfta og óveður. Þetta verður gert meðal annars á samfélagsmiðlum og í 112-blaðinu sem fylgir Fréttablaðinu í dag.

Guðrún Jóhannesdóttir, verkefnastjóri hjá almannavarnadeild RLS, segir mikilvægt að almenningur hugi að réttum viðbúnaði og viðbrögðum.  „Almenningur getur gert svo margt til að draga úr tjóni og afleiðingum náttúruhamfara með undirbúningi og réttum viðbrögðum,“ segir Guðrún. Ítarlegar upplýsingar um viðbúnað og viðbrögð er að finna á almannavarnir.is.

Neyðarlínan gegnir lykilhlutverki í almannavörnum með móttöku og úrvinnslu neyðarbeiðna og rekstri Tetra-fjarskiptakerfisins sem viðbragðsaðilar nota innbyrðis og sín á milli. Mikil útbreiðsla GSM og rekstur Tetra gera viðbrögð við vá miklu skilvirkari og einfaldari en áður var og eru ein meginforsenda fyrir rekstri samhæfingarstöðvar almannavarna, að sögn Þórhalls Ólafssonar, framkvæmdastjóra Neyðarlínunnar.

20 ára afmælishátíð 112 kl. 16 í dag

Neyðarlínan fagnar einmitt 20 ára afmæli um þessar mundir en 1. janúar síðastliðinn voru liðin 20 ár síðan samræmda, evrópska neyðarnúmerið var tekið í notkun hér á landi. Það leysti af hólmi 146 mismunandi númer viðbragðsaðila sem almenningur notaði til að leita eftir aðstoð, allt eftir því hvar fólk var statt og hvers eðlis þörfin fyrir aðstoð var hverju sinni.

„Það var mikið framfaraskref þegar eitt samræmt neyðarnúmer fyrir landið allt og alla viðbragðsaðila var tekið í notkun. Meirihluti landsmanna hefur notað neyðarnúmerið og mælingar sýna að yfirgnæfandi meirihluti notenda er ánægður með þjónustuna,“ segir Þórhallur.

20 ára afmælinu verður fagnað við athöfn í bílageymslu SHS í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð kl. 16 í dag með svohljóðandi dagskrá:

·         Ávarp: Ólöf Nordal innanríkisráðherra

·         Kvennakórinn Katla

·         Verðlaun í Eldvarnagetrauninni 2015 afhent

·         Gamanmál: Ari Eldjárn

·         Skyndihjálparmaður Rauða krossins útnefndur

Samstarfsaðilar 112-dagsins

112-dagurinn er samstarfsverkefni stofnana og félagasamtaka sem annast margvíslega neyðarþjónustu, almannavarnir og barnavernd í landinu. Þau eru: 112, Barnaverndarstofa, Embætti landlæknis, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, Landhelgisgæslan, Landspítalinn, Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, Mannvirkjastofnun, Rauði krossinn, Ríkislögreglustjórinn, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, Vegagerðin og samstarfsaðilar um allt land.