Fréttir
  • Vatnsdalsá - nýja brúin
  • Vatnsdalsá - nýja brúin
  • Vatnsdalsá - gamla brúin
  • Vatnsdalsá - gamla brúin rifin
  • Vatnsdalsá - unnið að smíði nýju brúarinnar

Ný brú komin yfir Vatnsdalsá - opið fyrir umferð

Bráðabrigðabrúin klár er 45 m löng stálbitabrú

23.9.2015

Brúarvinnuflokkur Vegagerðarinnar hefur nú lokið við að byggja bráðbirgðabrú yfir Vatnsdalsá við Grímstungu. Gamla brúin féll undan efnisflutningabíl í síðasta mánuði. Flokkurinn sem telur 5-6 menn hóf smíðina á sjálfri brúnni 4. september og luku henni þann 18. september en þá átti eftir að fylla að. 

Fyrst þurfti þó flokkurinn að rífa gömlu brúna svo sem sjá má á myndunum sem fylgir. Vel og greiðlega gekk að smíða brúna sem er 45 m löng stálbitabrú með timburgólfi í þremur höfum. Akbrautarbreidd er 3,6 m og heildarbreidd 4,0 m. Miðhaf brúarinnar er 22 m langt, undirstöður eru nálægt árbökkum beggja vegna og því var lítið hreyft við ánni sjálfri. Undirstöður eru í landi í fyllingu báðum megin. 

Bráðabirgðabrúin var byggð fyrir fullt umferðarálag.  200 m langar vegtengingar voru lagðar beggja vegna brúarinnar og lauk því verki endanlega í dag.  Efnismagn í vegtengingum er um 3000 m3

Umferð er nú öllum opin. Ekki er vitað hvenær verður ráðist í gerð nýrrar brúar né hvernig sú mun líta út. Það ræðst af fjárveitingum fyrst og fresmt.