Aukin umferð í mars
færri aka þó á sunnudögum
Milli mánaða
Skamkvæmt mælingum Vegagerðarinnar, jókst umferðin um 4,7% milli mars mánaða 2014 og 2015. Leita þarf aftur til ársins 2010 til að finna meiri umferð í mars mánuði á Hringveginum.
Umferðin í mars jókst á öllum landssvæðum. Mesta aukningin mældist um Austur- og Norðurland eða um 36% og 22%. En þá ber að hafa í huga að umferðin, á þessum svæðum, dróst mikið saman á síðasta ári í sama mánuði.
Minnst jókst umferðin um Suðurland eða 1,1%.
Frá áramótum
Þegar tímabilið janúar til og með mars er skoðað þá er umferðin í heild mjög svipuð því sem hún var fyrir sama tímabil á síðasta ári eða einungis 0,1% minni.
Að umferðin sé rétt undir því sem hún var á síðasta ári munar mestu um tæpan 2% samdrátt um Suðurland og 1% við höfuðborgarsvæðið. Umferðin eykst aftur á móti mikið um Norður og Austurland eða um tæp 8% annars vegar og um tæp 18% hins vegar, fyrir þetta sama tímabil.
Umferðin eftir vikudögum
Frá áramótum hefur umferðin aukist alla daga nema fimmtudaga, sem eru 0,3% undir, og sunnudaga, sem eru talsvert undir síðasta ári eða rúmlega 11%. Þetta kann að vera vísbending um að minna sé farið í helgartúra út á Hringveginn, það sem af er ári miðað við síðasta ár.