Fréttir
  • Frá framkvæmdum við Miklabraut, úr skýrslunni
  • Frá framkvæmdum við Miklabraut, úr skýrslunni
  • Frá framkvæmdum við Miklabraut, úr skýrslunni

Miklabraut við Klambratún – ábendingar í nýrri umferðaröryggisrýni

Umferðaröryggisúttekt liggur fyrir

13.12.2017

Umferðaröryggi á Miklubraut hefur verið töluvert í umræðunni upp á síðkastið. Nú liggur fyrir seinni umferðaröryggisrýni á endurbótum á Miklubraut við Klambratún vegna strætóreinar, göngu- og hjólastíga ásamt breytinga á götu. Markmiðið með umferðaröryggisrýni er að ný umferðarmannvirki verði eins örugg og hagkvæmt er. Rýnihópurinn fór í vettvangsferð 28. nóvember sl. og lagði mat á þann hluta framkvæmdanna sem lokið er og setti fram gagnlegar lausnir þar sem það á við.

Í fyrri umferðaröryggisrýni sem fram fór á hönnunarstigi var m.a. bent á að kanna þyrfti hvort hljóðvörn, grjótkörfuveggur á Klambratúni, tilheyrði viðurkenndum öryggisbúnaði. Hönnunarteymi verkefnisins, sem samanstendur af fulltrúum Reykjavíkurborgar og Vegagerðarinnar ásamt ráðgjöfum, leit hins vegar svo á að við þessar aðstæður í borginni væru veggir utan öryggissvæðis götunnar og gerði því ekki breytingar á hönnuninni. Útafakstur á þessum kafla hefur verið fátíður, árin 1996-2016 var tvisvar ekið á ljósastaur og er annar útafakstur ekki skráður á tímabilinu.

Í seinni umferðaröryggisrýni  er m.a. ítrekuð sú ábending að hljóðvörn sé innan öryggissvæðis samkvæmt veghönnunarreglum Vegagerðarinnar og að sérstaklega þurfi að huga að ákeyrsluhættu við enda hljóðvarna. Uppsetning vegriðs fyrir framan hljóðvörn er ein þeirra lausna sem nefnd er til að mæta þessari ákeyrsluhættu en tekið er fram að vegrið feli í sér ákveðna hættu, aðeins eigi að setja vegrið upp þar sem hættulegra er að aka útaf en að aka á vegriðið.

Hönnunarteymi útfærir lausnir

Sameiginleg verkefnisstjórn Reykjavíkurborgar og Vegagerðarinnar í verkefninu er byrjuð á yfirferð á seinni umferðaröryggisrýni. Þær ábendingar sem fram koma í öryggisrýninni verða teknar til nákvæmrar yfirferðar af hönnunarteymi, þær verða metnar og þeim svarað. Hönnunarteyminu verður m.a. falið að útfæra hvernig hægt er að verja enda hljóðvarna með vegriðum og að meta hvort ástæða sé til að verja grjótkörfuvegg víðar, m.a. með hliðsjón af jarðvegsfyllingu og gróðri sem á eftir að koma upp að veggnum á köflum. Við mat á útfærslu ákeyrsluvarna verði horft til nettari gerða vegriða sem taka mið af þeirri landslagshönnun og því borgarumhverfi sem þarna er.

Lækkun hámarkshraða

Lækkun hámarkshraða á Miklubraut á þessum kafla hefur verið til umræðu síðustu árin. Rannsóknir sýna að með hraðalækkun er bæði verið að minnka líkur á að slys eigi sér stað og draga úr alvarleika þeirra slysa sem verða. Í skýrslu starfshóps, sem samþykkt var í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur, fyrr á árinu er lagt til að hraði á þessum kafla verði lækkaður úr 60 km/klst. í 50 km/klst. í samræmi við umferðaröryggisaðgerðir víða í erlendum borgum. Vegagerðin hefur ekki mælt með því við lögreglustjóra að hámarkshraði verði lækkaður eins og umhverfi Miklubrautar var. Vegagerðin  mun endurskoða það mat m.t.t. þess umhverfis sem verið er að ganga frá með nýju framkvæmdinni.

 

Umferðaröryggisrýnin:
Miklubraut - strætórein - umferðaröryggisúttekt á framkvæmdastigi