Líka mikil aukning í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu
umferðin árið 2016 jókst um ríflega sjö prósent
Metin falla í umferðinni og þótt umferðaraukningin á höfuðborgarsvæðinu sé ekki jafn mikil og á Hringveginum (sjá eldri frétt) er hún gríðarlega mikil. Í desember jókst umferðin um ríflega 12 prósent. Þegar árið 2016 er gert upp í heild kemur í ljós að umferðin á svæðinu jókst um ríflega 7 prósent sem er mjög mikið. Reynslan sýnir að mikil fylgni er á milli umferðarinnar á höfuðborgarsvæðinu og hagvaxtar, sjá á línuritinu sem fylgir fréttinni og er því umferðin ákveðin vísbending um hver hagvöxturinn verður árið 2016.
Milli mánaða 2015 og 2016
Nú liggur það fyrir að í hverjum einasta mánuði ársins 2016 var slegið met í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu. Umferðin um þrjú mælisnið á höfuðborgarsvæðinu jókst gríðarlega mikið milli desember mánaða árin 2015 og 2016 eða um rúmlega 12%. Þessi aukning er önnur mesta aukning ársins en mesta aukning milli desember mánaða frá upphafi þessara mælinga. Öll mælisniðin þrjú gáfu tveggja stafa hlutfallstölu en mest jókst umferðin um mælisnið á Vesturlandsvegi ofan Ártúnsbrekku eða um rúmlega 13%.
Meðaltalsaukning milli desembermánaða mælist nú 2,3% frá árinu 2005 en 4,2% frá árinu 2011.
Milli áranna 2015 og 2016
Samkvæmt umræddum mælisniðum hefur umferðin á höfuðborgarsvæðinu fyrir allt árið 2016 aukist um rúmlega 7% miðað við árið á undan. Þetta er næst mesta aukning frá upphafi þessarar samantektar en einungis milli áranna 2006 og 2007 hefur mælst meiri aukning en hún varð rúmlega 9%.
Umferðin á höfuðborgarsvæðinu, samkvæmt þessum þremur mælisniðum, hefur aldrei verið meiri og hún er nú orðin 14% meiri en árið 2007.
Umferð eftir vikudögum
Á höfuðborgarsvæðinu er umferðin mjög svipuð milli virkra vikudaga en þó varð hún mest á föstudögum en minnst er umferðin um helgar og allra minnst er hún á sunnudögum.
Fyrir árið í heild jókst umferðin hlutfallslega mest á laugardögum eða um 8,8% en minnst var aukningin á mánu- og miðvikudögum eða um 6,4%, sé miðað við árið 2015.