Fréttir
  • Vesturlandsvegur
  • Vesturlandsvegur

Kynning á deiliskipulagi vegna Vesturlandsvegar á Kjalarnesi

opinn fundur Vegagerðarinnar og Reykjavíkurborgar

23.8.2017

Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar og Vegagerðin halda opið hús eða kynningarfund til að kynna fyrir landeigendum og öðrum hagsmunaaðilum þau drög sem liggja fyrir við gerð deiliskipulags fyrir Vesturlandsveg á Kjalarnesi. Fundurinn verður haldinn í Fólkvangi á Kjalarnesi 24. ágúst kl. 17:30.

 

Í vinnslu er nýtt deiliskipulag fyrir Hringveginn (1) um Vesturlandsveg frá sveitarfélagsmörkum við Mosfellsbæ að Hvalfjarðargöngum. Um er að ræða u.þ.b. 14 km kafla. Tildrög verkefnisins eru að Vegagerðin hyggur á næstu árum á framkvæmdir á um 9 km kafla fyrir 2+1 veg frá Hvalfjarðargöngum að Kollafirði í núverandi vegastæði. Með skipulagsvinnunni er einnig vonast til þess að það náist heildstætt yfirlit yfir alla aðra samgönguþætti sem þarf að útfæra nánar í skipulagi, þ.e.a.s. hliðarvegi, göngustíga, reiðleiðir og hjólaleiðir. Meðal markmiða skipulagsins og framkvæmdanna er að Vesturlandsvegur verði endurbættur til að auka öryggi umferðar og greiða fyrir umferð og er því verið að skoða fækkun tenginga við þjóðveginn með gerð hliðarvega sem tengjast við þjóðveginn með hringtorgum á völdum stöðum.

Fundurinn verður haldinn i Fólkvangi á Kjalarnesi og eru allir velkomnir, kaffi og kleinur. Fulltrúar frá samgöngudeild og skipulagsfulltrúa Reykjavíkur, Vegagerðinni og ráðgjafar frá Eflu verkfræðistofu og Landslagi, landslagsarkitektum verða á fundinum og kynna efnið fyrir fundargestum og taka við fyrirspurnum og ábendingum.