Fréttir
  • Umferðin eftir mánuðum
  • Umferðin með spá út árið
  • Umferðin uppsafnað
  • Umferðin eftir vikudögum

Gríðarlega mikil aukning umferðar síðan 2012

Umferðin í desember jókst um nærri 10 prósent

3.1.2018

Umferðin í desember jókst um 9,3 prósent, minna en á síðasta ári en samt er þetta mjög mikil aukning. Umferðin í fyrra jókst um 10,6 prósent sem er næstmesta aukning frá því samantekt af þessu tagi hófst árið 2005. Undanfarin ár, eða síðan 2012 hefur umferðin aukist tvöfalt meira en að meðaltali síðan 2005 eða um 7,6 prósent meðan meðaltalið á ári yfir allt tímabilið er 3,4 prósent.


Milli mánaða 2016 og 2017
Umferð í nýliðnum desember jókst um 9,3% miðað við sama mánuð árið 2016. Þessi aukning er mun minni en varð á síðasta ári en á svipar til aukningarinnar á milli áranna 2014 og 2015.

Mest jókst umferð um teljarasnið á Suðurlandi eða um 16,1% en minnst um snið á Austurlandi eða um 4,3%. 

Af einstaka teljarasniðum jókst umferð mest um Hringveginn á Mýrdalssandi eða um 21,8%.  Þessi mikla aukning vekur athygli þar sem ári áður hafði umferðin aukist um 89,3% milli desember mánuða 2015 og 2016 og þar á undan um 41,3% þ.a.l. hefur umferðaraukningin austan við Vík í Mýrdal í desember (jafnframt aðra mánuði einnig) verið fádæma mikil undanfarin ár.

Frá árinu 2005 hefur umferðin nú aukist að jafnaði langmest í ágúst, september og október eða frá 3,8% - 4,2% á ári.

Milli ára 2016 og 2017
Fyrir allt árið 2017 gildir að umferðin hefur aukist um 10,6% miðað við árið 2016.  Þetta er næst mesta aukning yfir mælisniðin 16 frá upphafi þessarar samantektar.

Mest jókst umferðin um Suðurland eða um 15,5% en minnst jókst umferðin yfir mælisnið á Austurlandi eða um 8,6%.

Líkt og milli mánaða jókst umferð mest, fyrir einstaka mælisnið, um Mýrdalssand eða um 24,4%.   

Fyrir árið í heild hefur umferðin nú aukist um 3,4% á ári að jafnaði frá árinu 2005, sem telja verður hóflegur vöxtur, en frá árinu 2012 hefur árlegur vöxtur numið um 7,6%, sem telja verður mjög mikill fyrir áður nefnt tímabil. 

Umferð eftir vikudögum milli áranna 2016 og 2017Samanburðartafla
Umferðin á síðasta ári jókst mest á þriðjudögum eða 12,3% en minnst var aukningin á sunnudögum eða 7,9%.  Mest er ekið á föstudögum en minnst á þriðjudögum.

Talnaefni