Enn falla metin í umferðinni
gríðarlega aukning í umferðinni á Hringveginum í ágúst
Gríðarlega aukning varð á umferðinni í ágúst á Hringveginum. Umferðin jókst um heil 13 prósent en að meðaltali hefur umferðin í ágúst aukist um 3,5 prósent. Umferðin frá áramótum talið hefur heldur ekki aukist meira eða um 12,8 prósent. Útlit er fyrir að umferðin í ár aukist um nærri 11 prósent sem yrði algert met því fyrra met mældist 6,8 prósenta aukning milli áranna 2006 og 2007.
Milli mánaða 2015 og 2016
Umferðin, um 16 lykilteljara Vegagerðarinnar á Hringvegi jókst um 13% í nýliðnum ágúst mánuði borið saman við sama mánuð á síðasta ári. Mest
jókst umferðin um lykilteljara á Austurlandi eða um rúmlega 25%. Þessi
aukning er bæði met í bílum talið og í hlutfallslegum vexti milli ára í ágúst.
Aldrei hafa fleiri ökutæki ekið um 16 lykilteljara Vegagerðarinnar í
ágúst mánuði frá því að þessi samantekt hófst, en alls fóru rúmlega 97 þúsund ökutæki um sniðin 16 á degi hverjum í síðasta mánuði. Árið 2015 fóru 86 þúsund ökutæki um þessi sömu snið í sama mánuði. Þannig að 11 þúsund bílum fleiri bílar fóru um Hringveginn á hverjum einasta degi í nýliðnum ágúst miðað við sama mánuð á síðasta ári.
Umferðin í ágúst hefur vaxið mest frá upphafi samantektar eða að meðaltali um 3,5% á ári. Þessi aukning nú í ár er því margfalt meiri en meðalvöxtur undanfarinna ára.
Frá áramótum milli áranna
2015 og 2016
Umferðin um 16 lykilteljara Vegagerðarinnar á Hringvegi
hefur nú aukist um 12,8% frá áramótum miðað við sama tímabil á síðasta ári. Líkt og
milli mánaða þá er þetta einnig met í bílum talið og hlutfallslegum vexti miðað við árstíma frá því að þessi samantekt hófst á þennan hátt árið 2005.
Mest hefur umferðin vaxið á Austurlandi eða um rúmlega 27%. Þessi mikli vöxtur umferðar á Austurlandi er eftirtektarverður en jafnframt verður að hafa í huga að umferðin um lykilmælipunkt á því svæði er sú lang minnsta eða rétt um 1,5% af heildarumferð svæðanna/lykilteljaranna.
Umferð eftir vikudögum
milli áranna 2015 og 2016
Umferðin hefur vaxið mest á sunnudögum eða um 15,6% miðað við sama
tímabil á síðasta ári. Mest er ekið um Hringveginn á föstudögum en minnst
þriðjudögum.
Horfur út árið 2016
Horfur út árið hafa vaxið örlítið frá því að júlí tölur komu
út en nú má búast við tæplega 11% aukningu umferðar á Hringveginum nú í ár, sé
tekið mið af þessum 16 lykilteljurum Vegagerðarinnar. Enn aukast líkur á
því að aukningin nú í ár slái öll fyrri met á Hringveginum. Mesta árlega
aukning á Hringveginum fram til þessa er á milli áranna 2006 og 2007 eða 6,8%.