Dregur úr umferðaraukningunni á höfuðborgarsvæðinu
Umferðin í mars jókst um tæp þrjú prósent
Umferðin um þrjú mælisnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu jókst um tæp þrjú prósent í mars sem er mun minni aukning en undanfarin ár. Í fyrra nam aukningin nærri 15 prósentum. Reikna má með að umferðin aukist í ár um 2-4 prósent.
Umferð
milli sömu mánuða fyrir árin 2017 og 2018
Umferðin í
nýliðnum mars á höfuðborgarsvæðinu jókst ekki eins mikið og á Hringvegi en áætluð
aukning er um 2,9%. Þetta er mun minni aukning en á síðasta ári en þá
jókst umferðin um 14,6% um mælisnið Vegagerðarinnar. Engu að síður er um nýtt met að ræða
í fjölda ökutækja í mars mánuði. Núna hefur umferðin aukist að jafnaði um
3% á ári í mars frá árinu 2005 en um 6% síðustu 5 árin þ.a.l. er núverandi aukning
langt undir meðaltali síðustu 5 ára.
Umferð
eftir vikudögum
Umferðin í
mars jókst hlutfallslega mest á sunnudögum, eða um 9,4%, en dróst saman um 4,7%
á föstudögum. Mest var ekið á miðvikudögum en minnst á sunnudögum, í
nýliðnum mars.
Frá
áramótum milli áranna 2017 og 2018
Nú hefur
umferðin aukist um 3,3%, frá áramótum miðað við sama tímabil á síðasta ári.
Þetta er mun minni aukning miðað við árstíma síðustu ára, en á síðasta ári hafði
umferðin aukist um 10,1% á sama tíma, miðað við árið á undan, og árið þar áður um
5,1%.
Horfur
út árið 2018
Horfur út
árið eru óbreyttar frá því að febrúarumferð lá fyrir eða spá um umferðaraukningu sem nemur 2
– 4%.