Fréttir
  • Umferðin eftir mánuðum
  • Umferðin með spá út árið
  • Umferðin uppsafnað
  • Umferðin eftir vikudögum
  • Umferðin virkir dagar og helgar

Aukin umferð í febrúar á höfuðborgarsvæðinu

minni aukning en hefur verið

5.3.2018

Ólíkt Hringveginum þá jókst umferðin á höfuðborgarsvæðinu í febrúar. Hún jókst þó minna en undanfarna mánuði eða um tæp þrjú prósent. Alls fóru 155 þúsund ökutæki á hverjum sólarhring um þrjú mælisvið Vegagerðarinnar og hafa þá aldrei verið fleiri.

Milli mánuða 2017 og 2018
Áætlað er að umferð hafi aukist um tæp 3% milli febrúarmánaða 2017 og 2018.  Þó þetta sé ekki mikil aukning miðað við undanfarna mánuði er hún mun meiri en úti á Hringvegi þar sem samdráttur varð, sbr. fyrri frétt þar um .

Áætlað er að aldrei hafi fleiri bílar farið um lykilsniðin þrjú í febrúar, eða 155 þúsund ökutæki á sólarhring.

Frá áramótum milli 2017 og 2018
Nú er áætlað að umferð hafi aukist um 3,7% fyrir lykilsniðin þrjú miðað við sama tímabil á síðasta ári.  Þetta er helmingi minni aukning en átt hafði sér stað á sama tíma á síðasta ári.

Umferð vikudaga
Umferð jókst í öllum vikudögum nema sunnudögum en þar mældist 2% samdráttur. Mest jókst umferðin á miðvikudögum en fimmtudagar voru umferðarmestir og sunnudagar umferðarminnstir.  Það má ganga út frá því sem gefnu, miðað við umferðarmælingar, að sunnudagar séu ætíð umferðarminnstir allra vikudaga á höfuðborgarsvæðinu.

Horfur út árið 2018
Áætlaðar horfur geta breyst mikið í upphafi hvers árs en þar getur tíðarfarið spilað inní.  Nú er gert ráð fyrir að umferð gæti aukist um 2-4% árið 2018 en þetta skýrist betur eftir því sem líður á árið.

Virkir dagar og helgar
Hér til hliðar má sjá nýja útgáfu af súluriti sem sýnir umferðina um eitt mælisnið af þremur eftir umferðinni á virkum dögum og um helgar. Vel sést hvernig umferðin hagar sér mismunandi eftir því hvort er virkur dagur eða helgi, fyrst og fremst þá eftir því á hvaða tíma dags ekið er. Fleiri súlurit um hin sniðin má sjá í Talnaefni .

Talnaefni

Athugið:
Rauntímagögn eru grófrýnd sem gætu tekið breytingum við endanlega yfirferð.

Teljari á Reykjanesbraut bilaði í síðasta mánuði því eru umferðartölur áætlaðar í hluta mánaðarins. Umferðartölur frá þessum stað kunna því að taka breytingum síðar, þegar gögn taka að berast á ný.