Fréttir
  • Fiskidagurinn mikli - fjöldi bíla
  • Fiskidagurinn mikli - fjöldi fólks

Aldrei fleiri á Fiskideginum mikla

sé tekið mið af talningu á ökutækjum um helgina

13.8.2018

Vegagerðin hefur fylgst með fjölda bifreiða sem aka til og frá Dalvík um Fiskidagshelgina allt frá árinu 2008. Aldrei hafa fleiri bílar farið um talningastaðina og nú eða um 27.500 bílar og því má reikna með að um 36 þúsund manns hafi sótt Dalvík heim sem er um 3 þúsund fleiri en í fyrra og 11 þúsund fleiri en árið 2008.

Frá árinu 2008 hefur Vegagerðin fylgst með umferð í kringum Dalvík um Fiskidagshelgina og samkvæmt umferðarteljurum Vegagerðarinnar var sett nýtt met í fjölda ökutækja sem óku yfir þá eða tæplega 27.500 bifreiðar frá föstudegi til sunnudags. 

Aukningin samsvarar um 6,5% miðað við sömu helgi á síðasta ári. Þessi fjöldi ökutækja gefur vísbendingu um að 36 þúsund manns hafi ekið til og frá Dalvík á tímabilinu.