Rannsóknarráðstefna Vegagerðarinnar 2008
Metþátttaka á sjöundu ráðstefnunni
Aldrei áður hafa jafn margir sótt árlega ráðstefnu Vegagerðarinnar um rannsóknir og nú í ár en 171 þátttakandi var skráður á þessa sjöundu ráðstefnu sem haldin var þann 7. nóvember síðastliðinn. Þar var fjallað um til dæmis breikkun vega, þróun þungaumferðar, stofnbrautir hjólreiða, umferðaröryggi á hálendinu, tíðni aftakaatburða í framtíðarveðri, skipulagsáætlanir og þjóðvegi svo nokkur dæmi séu tekin.
Á ráðstefnunni voru kynnt 19 verkefni sem hafa fengið styrk úr rannsóknasjóði Vegagerðarinnar á þessu og síðasta ári. Það er þó aðeins hluti af þeim fjölda verkefna sem fá styrk, en á hverju ári undanfarið hefur ríflega 100 milljónum króna verið veitt í yfir 100 verkefni. Umsóknir hafa þó alltaf verið mun fleiri og oft þurft að hafna góðum verkefnum.
Í vegalögum er bundið að 1,5 % af mörkuðum tekjum stofnunarinnar skuli renna til rannsókna og þróunar. Gert hefur verið ráð fyrir að þessi lagabókstafur verði virkur við endurskoðun á 4 ára samgönguáætlun og því hefðum við úr fleiri krónum að spila við úthlutun í febrúar 2009 en áður. Á óvissutímum sem nú eru, gæti þó orðið einhver samdráttur í þessu, en ekki er búist við frekari niðurskurði, enda ekki síður mikilvægt að stunda rannsóknir á krepputímum en öðrum tímum.
Skýrslur og niðurstöður rannsókna eru birtar hér á vefnum jafnóðum og þær liggja fyrir:
Upplýsingar og útgáfa => Rannsóknarskýrslur
Nú er hægt að nálgast ágrip af erindum á ráðstefnunni og einnig hægt að skoða glærur sem fyrirlesarar notuðu, sjá hér fyrir neðan.
Dagskrá ráðstefnunnar með erindum og ágripum:
|
Setning (Þórir Ingason, Vegagerðinni) |
|
Klór í steyptum brúargólfum undir malbiki (Gísli Guðmundsson, Mannviti) - ágrip |
Hönnun breikkana - Breikkun og styrking vega með bundnu slitlagi (Kristján Kristjánsson, Vegagerðinni) - ágrip |
Vegrið og vegbúnaður, valkostir og kröfur (Daníel Árnason, Vegagerðinni) - ágrip |
Tilraunakaflar með klæðingu á Vestfjörðum (Pétur Pétursson, NMÍ) - ágrip |
|
Háannatímalíkan 2007 (Smári Ólafsson, VSÓ) - ágrip |
Þróun þungaumferðar á þjóðvegum (Skúli Þórðarson, Vegsýn) - ágrip |
Stofnbrautir hjólreiða - rýni áætlana (Sverrir Bollason, VSÓ) - ágrip |
Óhappatíðni eftir breidd og langhalla vega (Haraldur Sigþórsson, EFLA verkfræðistofa) - ágrip |
Umferðaröryggi á hálendinu: Kárahnjúkavegur (Guðmundur Freyr Úlfarsson, HÍ og Þórarinn Hjaltason, Almennu verkfræðistofunni) - ágrip |
Athugun á slysum þar sem ekið hefur verið á ljósastaura (Auður Þóra Árnadóttir, Vegagerðinni) - ágrip |
Hægri beygjur af þjóðvegum (Bryndís Friðriksdóttir, EFLA verkfræðistofa) - ágrip |
|
Hálendisvegir, sjónræn áhrif og vegstaðlar fyrir útivistarvegi á hálendinu (Ragnar Frank Kristjánsson, LbHÍ, Snævarr Guðmundsson, nemi HÍ) - ágrip |
Ferðamannaleiðir - ferðamannavegur - skilgreining (Fríða Björg Eðvarðsdóttir, VSÓ) - ágrip |
Tíðni aftakaatburða í framtíðarveðurfari (Haraldur Ólafsson, HÍ og Veðurstofunni) |
Efnarafall til framleiðslu á orku fyrir mælistöðvar (Nicolai Jónasson, Vegagerðinni) - ágrip |
Tengsl umhverfismats áætlana og mats á umhverfisáhrifum framkvæmda (Ásdís Hlökk Theódórsdóttir, Háskólanum í Reykjavík) - ágrip |
|
Skipulagsáætlanir og þjóðvegir (Salvör Jónsdóttir, Alta) - ágrip |
Verklagsreglur og áhættuviðmið vegna snjóflóða á þjóðvegum (Árni Jónsson, Orion) - ágrip |
Mannaflaþörf og tækjanotkun í vegagerð (Jón Þorvaldur Heiðarsson, Háskólanum á Akureyri) - ágrip |
Samgönguáætlun og framtíðarþróun í samgöngumálum (Dagur B. Eggertsson, formaður samgönguráðs) |