Launastefna
Forstjóri ber ábyrgð á launastefnu Vegagerðarinnar.
Framkvæmdastjóri fjármálasviðs er fulltrúi stjórnenda varðandi jafnlaunakerfi og er ábyrgur fyrir innleiðingu og viðhaldi þess í samræmi við staðalinn ÍST 85.
Vegagerðin greiðir laun í samræmi við gildandi kjarasamninga, þar með talið stofnanasamninga.
· Mannauðsstjóri, í samráði við forstjóra, ber
formlega ábyrgð á öllum launaákvörðunum og gætir þess að samræmis sé gætt við
alla ákvarðanatöku þar um.
· Launaákvarðanir skulu byggðar á málefnalegum
forsendum, í samræmi við samninga og starfslýsingar sem skulu vera til fyrir
öll störf.
· Í starfslýsingu komi fram þær kröfur sem gerðar
eru til viðkomandi starfs.
· Umfang og eðli starfs hefur áhrif á laun og
ræðst af fjölmörgum þáttum, svo sem menntun, starfsreynslu, þekkingu, hæfni,
ábyrgð, álagi og vinnuaðstæðum.
· Starfsfólk getur óskað eftir viðtali við sinn yfirmann
um endurskoðun launa. Telji yfirmaður þörf á endurskoðun vísar hann
rökstuðningi þar um til mannauðsstjóra.