Umferðarþjónusta - Tilkynning - 23.4.2018

Sigfríður Hallgrímsdóttir 2018-04-23 15:40

Færð og aðstæður

Vegir eru víðast hvar greiðfærir en á Norðaustur- og Austurlandi eru hálkublettir eða krap á fáeinum vegum.

Sumarvegir eru flestir ófærir og þar er sums staðar akstursbann vegna hættu á skemmdum.
 

Næturlokun í Hvalfjarðargöngum

Hvalfjarðargöng verða lokuð yfir nóttina þessa viku, vegna viðhalds og þrifa. Lokað verður frá miðnætti til kl. 6 að morgni fram á föstudagsmorgun.

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum þarf sums staðar að takmarka ásþunga umfram það sem almennt gerist. Sjá nánar hér.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.