Umferðarþjónusta - Tilkynning - 21.9.2018
Færð
Hálkublettir eru á nokkrum fjallvegum á Vestfjörðum og á Vesturlandi. Hálkublettir eru á Strandavegi.
Hálkublettir eru á Hólasandi og Mývatnsöræfum en hálka á Möðrudalsöræfum. Hálkublettir á Hárekstaðaleið og Fjarðarheiði. Þæfingsfærð er Mjóafjarðarheiði. Þungfært er á Hellisheiði eystri.
Hálendi
Víða á hálendinu er færð farin að spillast og vegfarendur beðnir að kanna aðstæður áður en farið er inn á hálendisvegi.
Framkvæmdir við Esjumela
Á næstu vikum verður unnið að byggingu hringtorgs og undirganga fyrir gangandi auk vega- og stígagerðar á Esjumelum við Norðurgrafarveg og verður umferð um Vesturlandsveg beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu. Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst og eru ökumenn hvattir til að virða merkingar á vinnusvæðinu.