Umferðarþjónusta - Tilkynning - 20.1.2018

Sveinfríður Högnadóttir 2018-01-20 11:47

Ólafsfjarðarmúli og Siglufjarðarvegur

 B: Óvissustigi vegna snjóflóðahættu er lýst yfir í Ólafsfjarðarmúla.  Siglufjarðarvegi hefur verið lokað vegna snjóflóðahættu.

Skilgreining á B: Óvissustig. Hætta talin á snjóflóðum en samt ekki talin ástæða til að loka. Stig 3 snjóflóðaspár. Það gæti hafa fallið lítið snjóflóð eða það er veður sem snjóflóð falla oft í, vindátt, snjókoma. Einnig byggt á mælum og öðrum athugunum á staðnum. 

Færð og aðstæður

Á Suður- og Suðvesturlandi er hálka eða hálkublettir á flestum vegum. Hálkublettir eru á Reykjanesbraut og á Höfuðborgarsvæðinu.

Hálka eða snjóþekja er á  vegum á Vesturlandi. Þungfært er á Fróðárheiði.

Á Vestfjörðum er hálka eða snjóþekja og eitthvað um skafrenning eða éljagang. Þungfært er á Ennisháls.

Það er hálka, snjóþekja og þæfingsfærð á vegum í Norðurlandi og snjókoma eða éljagangur.  Dettifossvegur er lokaður.

Á Austurlandi er snjóþekja eða hálka á vegum og víða skafrenningur.

Hálkublettir eru með suðausturströndinni en greiðfært á nokkrum köflum.

Tjörublæðingar

Vegagerðin varar við tjörublæðingum á veginum milli Jökulsárlóns og Hafnar í Hornafirði.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.

Breiðafjarðarferjan Baldur

Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og  á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.

Hálendisvegir

Vegir á hálendinu eru að mestu ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda í veginum.