Umferðarþjónusta - Tilkynning - 18.3.2018
Færð og aðstæður
Vegir eru að mestu greiðfærir á landinu en hálka er norður í Árneshrepp á Ströndum. Þoka er á Hellisheiði og Fróðárheiði.
Slitlagsskemmdir
Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á
slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með
ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka
aðgát við þessar aðstæður.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum þarf sums staðar að takmarka ásþunga umfram það sem almennt gerist. Sjá nánar hér.Þingskálavegur
Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.