Opnun tilboða

Þorlákshöfn – dýpkun, rif á bryggju og færsla grjótvarna

14.6.2016

Tilboð voru opnuð 14. júní 2016. Hafnarsjóður Þorlákshafnar óskaði eftir tilboðum í ofangreint verk. 

Um er að ræða stofndýpkun, rif Norðurvararbryggju og færsla grjótvarna innan hafnar og í innsiglingu.

Svæðin sem dýpka á eru innan hafnar og í innsiglingu.

 Helstu magntölur:

  • Dýpka um 50.000 m3
  • Rif bryggju 123 m
  • Færsla grjótvarnar um 20.000 m3

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. júlí 2017.

BjóðandiTilboð kr.HlutfallFrávik þús.kr.

Áætlaður verktakakostnaður

317.731.800100,068.862

Hagtak ehf., Hafnarfirði

266.149.24083,817.279

Björgun ehf., Reykjavík

248.869.83478,30