Opnun tilboða
Skaftártunguvegur (208) - Brú á Eldvatn
Tilboð opnuð 24. apríl 2018. Smíði nýrrar brúar yfir Eldvatn á Skaftártunguvegi (208) í Skaftárhreppi í Vestur-Skaftafellssýslu. Ný brú yfir Eldvatn verður 80 m löng stálbogabrú og er um 0,5 km vestan núverandi vegamóta Hringvegar og Skaftártunguvegar í nýrri veglínu Skaftártunguvegar frá Eystri Ásum að nýjum vegamótum við Hringveg.
Helstu magntölur eru
- Mótafletir 385 m2
- Steypustyrktarjárn 49.500 kg
- Steypa 304 m3
- Vegrið á brú 164 m
- Forsteyptar einingar 120 stk.
- Smíði og uppsetning stálvirkja 190 tonn
- Hengistangir 6,3 tonn
- Stálvirki, hreinsun 1.220 m2
- Stálvirki, málun 1.220 m2
- Stálvirki, málmhúðun 1.220 m2
- Legur 4 stk.
Verkinu skal að fullu lokið fyrir 1. júlí 2019.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Eykt ehf., Reykkjavík | 487.142.374 | 160,2 | 119.724 |
Ístak hf., Reykjavík | 426.076.145 | 140,2 | 58.658 |
Munck Íslandi ekf., Kópavogi | 367.418.278 | 120,9 | 0 |
Áætlaður verktakakostnaður | 304.000.000 | 100,0 | -63.418 |