Opnun tilboða
Rifshöfn – Norðurkantur, þekja og lagnir
Tilboð opnuð 17. október 2017. Hafnarstjórn Snæfellsbæjar óskaði eftir tilboði í framkvæmdir við Norðurkant í Rifshöfn.
Helstu verkþættir eru:
- Steypa upp rafbúnaðarhús og þrjá stöpla undir ljósamöstur
- Leggja ídráttarrör fyrir rafmagn
- Leggja vatnslögn og koma fyrir vatnsbrunnum
- Leggja niðurfallslögn og koma fyrir niðurföllum
- Grófjafna yfirborð og þjappa, fínjafna síðan undir steypu.
- Slá upp mótum, járnbinda og steypa þekju, alls um 4.300 m²
Verkinu skal lokið eigi síðar en 31. maí 2018.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Áætlaður verktakakostnaður | 114.117.000 | 100,0 | 21.206 |
Stálberg ehf., Hafnarfirði | 107.013.000 | 93,8 | 14.102 |
Þ.G. Þorkelsson, Grundarfirði | 92.911.055 | 81,4 | 0 |