Opnun tilboða

Reykjanesbraut (41), vegamót við Hafnarfjarðarveg

31.5.2018

Tilboð opnuð 29. maí 2018. Breytingar á vegamótum Reykjanesbrautar og Fjarðarhrauns við Kaplakrika í Hafnarfirði. Verkið felst í tvöföldun vinstri beygju frá Fjarðarhrauni inn á Reykjanesbraut til austurs og nýrri aðrein meðfram Kaplakrikalæk.

Helstu magntölur eru:

  • Skeringar,           2150 m3
  • Styrktarlag,         1600 m3
  • Burðarlag,             600 m3
  • Malbikun             7400 m2
  • Kantsteinar         1000 m
  • Vegrið                    880 m
  • Stoðveggur             60 m
  • Steyptur kransi við enda undirganga

Breytingum í vegamótum skal vera lokið 20. ágúst 2018. Frágangi utan vega skal vera lokið 30. september 2018.

Engin tlboð bárust.