Opnun tilboða

Norðfjarðargöng, eftirlit

28.5.2013

Fyrri opnunarfundur 28. maí 2013. Eftirlit með gerð Norðfjarðarganga milli Eskifjarðar og Norðfjarðar. Jarðgöngin verða um 7,5 km löng í bergi og er breidd þeirra 8,0 m í veghæð. Heildarlengd vegskála er um 370 m. Verkið nær ennfremur til lagningar um 7,0 km af nýjum vegum. Eftirlitið nær einnig til fleiri útboða í verkinu svo sem til stýrikerfis, fjarskiptakerfis, hraðamyndavéla og byggingu brúa á Eskifjarðará, 38 m og Norðfjarðará, 44 m.

Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfnisvals og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðanda og verðtilboð.

Á fundinum var lesið upp hverjir skiluðu inn tilboðum:

GeoTek ehf. og Efla hf., Reykjavík
Verkís hf. og VSÓ - Ráðgjöf ehf., Reykjavík
Verkfræðistofan Hnit hf., Reykjavík

Síðari opnunarfundur verður á sömu stöðum þriðjudaginn 4. júní 2013 kl. 14:15 þar sem lesin verður upp stigagjöf bjóðenda í hæfnismati og verðtilboð hæfra bjóðenda opnuð.