Opnun tilboða
Vatnsnesvegur (711), Hvammstangi – Ytri Kárastaðir
Opnun tilboða 28. maí 2013. Endurbygging Vatnsnesvegar frá Hvammstanga að Ytri Kárastöðum, lengd 4,62 km. Innifalið í verkinu er gerð bæjarhliðs með tilheyrandi eyjum og uppsetning vegriðs.
Helstu magntölur eru:
Fylling | 4.340 | m3 |
Fláafleygar | 7.300 | m3 |
Styrktarlag 0/63 | 3.700 | m3 |
Burðarlag 0/22 | 5.200 | m3 |
Klæðing | 31.100 | m2 |
Ræsalögn | 139 | m |
Rásarbotn og fláar | 40.700 | m2 |
Vegrið | 173 | m |
Eyjar með steinlögðu yfirborði | 25 | m2 |
Útlögn klæðingar skal að fullu lokið fyrir 1. september 2013 og verkinu skal að fullu lokið fyrir 1. október 2013.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Áætlaður verktakakostnaður | 73.311.000 | 100,0 | 6.737 |
Skagfirskir verktakar, Sauðárkróki | 68.101.700 | 92,9 | 1.528 |
Borgarverk ehf., Borgarnesi | 66.574.000 | 90,8 | 0 |