Opnun tilboða
Breiðadals- og Botnsheiði, endurbætur á rafkerfi ganga
Tilboð opnu 28. júní 2011. Endurbætur á rafkerfi ganga undir Breiðadals- og Botnsheiði. Um er að ræða endurnýjun á iðntölvum í öllum stjórnskápum auk nauðsynlegra breytinga á skápunum, I/O einingar (dreifðar inn- og útgangseiningar) sem staðsettar verða í nær öllum neyðarsímaskápum með reglulegu millibili í öllum leggjum ganganna, neyðarsímaskápar (sími og slökkvitæki), blikkljós, lokunarbómur, dreifiskápar, varafl og tilfærsla á fjarskiptaskápum (TETRA) og uppsetning á loftnetum.
Helstu magntölur eru
Aflstrengir | 12.000 | m |
Ljósleiðari – single mode, 4 leiðari | 10.000 | m |
Ljósleiðari – single mode, 24 leiðari | 9.000 | m |
Síma- og slökkvitækjaskápar | 62 | stk. |
Dreifiskápar utan tæknirýma | 7 | stk. |
Varaafl | 8 | stk. |
Upplýst umferðarskilti | 89 | stk. |
Verkinu skal að fullu lokið 15. mars 2012.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
ÍAV hf., Reykjavík | 218.682.742 | 160,9 | 99.985 |
Rafal ehf., Hafnarfirði | 148.578.092 | 109,3 | 29.881 |
Rafmiðlun hf., Kópavogi | 148.460.862 | 109,2 | 29.763 |
Áætlaður verktakakostnaður | 135.905.303 | 100,0 | 17.208 |
Tengill ehf., Sauðárkróki | 135.818.130 | 99,9 | 17.121 |
Rafmenn ehf., Akureyri | 134.807.176 | 99,2 | 16.110 |
Rafskaut ehf., Ísafirði | 118.697.395 | 87,3 | 0 |