Opnun tilboða
Vetrarþjónusta 2010-2013, Suðurfjarðavegur (96)
Opnun tilboða 13. júlí 2010. Snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreiðum, ásamt upplýsingagjöf, á Suðurfjarðavegi (96), frá gangnamunna í Fáskrúðsfirði til Breiðdalsvíkur. Einnig á Hringvegi frá Breiðdalsvík að Þorgrímsstöðum í Breiðdal.
Helstu magntölur, á ári, eru:
Snjómokstur og hálkuvörn með vörubílum 15.320 km
Verktími er frá 15. október 2010 til og með 15. maí 2013.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Vöggur ehf., Fáskrúðsfirði | 12.159.600 | 116,6 | 1.731 |
Áætlaður verktakakostnaður *) | 10.428.850 | 100,0 | 0 |
*) Á opnunarfundi var lesin upp tala fyrir áætlaðan verktakakostnað sem reyndist vera rangt reiknuð. Rétt tala er 10.428.850 kr. og er hún færð í töfluna hér að ofan.