Hringvegur (1) - tvöföldun, Fossvellir - Draugahlíðar
Opnun tilboða 20. apríl 2010. Tvöföldun og breikkun Hringvegar frá Fossvöllum í Lögbergsbrekku, ofan við Lækjarbotna, að Draugahlíðarbrekku austan við Litlu kaffistofuna. Lengd útboðskaflans er um 6,5 km. Að vestan tengist vegkaflinn núverandi þriggja akreina vegi upp Lögbergsbrekku og að austan tengist vegurinn núverandi þriggja akreina vegi um Svínahraun. Um er að ræða tvöföldun á stærstum hluta útboðskaflans en breikkun í þriggja akreina veg á hluta hans. Auk þess eru innifaldar í útboðinu breytingar á núverandi vegamótum við Bláfjallaveg, Bolaölduveg og við Litlu kaffistofuna. Þá skal gera undirgöng fyrir gangandi og ríðandi umferð vestan við Litlu kaffistofuna og breikka núverandi brú á Fóelluvötn á Sandskeiði.
Helstu magntölur eru:
Bergskering |
20.000 |
m3 |
Fylling og fláafleygar |
223.000 |
m3 |
Ferging |
32.000 |
m3 |
Neðra burðarlag |
62.000 |
m3 |
Efra burðarlag |
22.000 |
m3 |
Malbik |
119.000 |
m2 |
Vegrið |
6.100 |
m |
Umferðareyjar |
1.000 |
m2 |
Götulýsing, skurðgröftur |
3.300 |
m |
Ljósastaurar |
35 |
stk. |
Mót |
1.050 |
m3 |
Járnalögn |
38.000 |
kg |
Steypa |
290 |
m3 |
Lögn stálplöturæsis |
37 |
m |
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 30. september 2011.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Ræktunarsamband Flóa og Skeiða ehf., Selfossi | 787.787.000 | 105,0 | 181.068 |
Verktakar Magni ehf., Kópavogi | 774.494.150 | 103,3 | 167.776 |
Suðurverk hf., Kópavogi | 767.464.000 | 102,3 | 160.745 |
Áætlaður verktakakostnaður | 750.000.000 | 100,0 | 143.281 |
Ístak hf., Reykjavík | 748.773.024 | 99,8 | 142.054 |
Mjölnir, Selfossi | 738.252.700 | 98,4 | 131.534 |
Íslenskir aðalverktakar hf., Reykjavík | 737.986.750 | 98,4 | 131.268 |
Héraðsverk ehf., Egilsstöðum | 717.404.590 | 95,7 | 110.686 |
Loftorka Reykjavík ehf., Garðabæ | 702.606.800 | 93,7 | 95.888 |
Borgarverk ehf., Borgarnesi | 692.833.000 | 92,4 | 86.114 |
KNH ehf., Ísafirði | 676.902.448 | 90,3 | 70.184 |
Árni Helgason ehf. og verktakafélagið Glaumur ehf., Garðabæ | 673.198.440 | 89,8 | 66.480 |
Ingileifur Jónsson ehf., Reykjavík | 641.945.500 | 85,6 | 35.227 |
Háfell ehf., Reykjavík | 629.734.820 | 84,0 | 23.016 |
Vélaleiga AÞ ehf., Reykjanesbæ | 618.862.630 | 82,5 | 12.144 |
Arnarverk ehf., Kópavogi | 606.718.600 | 80,9 | 0 |