Arnarnesvegur (411), Reykjanesbraut – Fífuhvammsvegur, hönnun
Article
Vegagerðin óskar eftir tilboði í for- og verkhönnun Arnarnesvegar (411), frá mislægum gatnamótum við Reykjanesbraut að gatnamótum Arnarnesvegar og Fífuhvammsvegar, um 1,8 km. Einnig skal for- og verkhanna fern gatnamót ásamt fimm undirgöngum og göngustígum. Forhanna skal staðsetningu á einni göngubrú.
Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfnismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðanda og verðtilboð.
Verkhönnun og skilamati skal lokið fyrir 22. desember 2008.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka), frá og með þriðjudeginum 13. maí 2008. Verð útboðsgagna er 4.000 kr.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 18. júní 2008, og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag og lesið upp hverjir hafa skilað inn tilboðum.
Síðari opnunarfundur verður þriðjudaginn 24. júní 2008 kl. 14:15 þar sem birtar verða einkunnir bjóðenda úr hæfnismati og verðtilboð opnuð.
Útboðið er einnig auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Opnun tilboða 24. júní 2008.
Bjóðendur* | Hæfnimat | Tilboð kr. |
Áætlaður verktakakostnaður | 55.000.000 | |
Almenna verkfræðistofan, Reykjavík | 67 | 60.725.561 |
Fjölhönnun ehf., Reykjavík | 62 | 48.539.287 |
Hnit hf., Reykjavík | 68 | 28.999.730 |
Línuhönnun hf., Reykjavík | 66 | 39.682.075 |
Mannvit, Reykjavík | 68 | 41.996.500 |
Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen, Reykjavík | 68 | 49.789.198 |
*stafrófsröð