Opnun tilboða

Vetrarþjónusta Norðaustursvæði 2007-2010, Bakkafjörður – Vopnafjörður - Vopnafjarðarheiði

14.8.2007

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreiðum, ásamt upplýsingagjöf, á Norðausturvegi (85), Hafnarvegi í Bakkafirði (91) og Hringvegi (1), frá Felli Bakkafirði, um Bakkafjörð, um Vopnafjörð og Vopnafjarðarheiði norður að Biskupshálsi.

Helstu magntölur, á ári, eru:

·                  Snjómokstur og hálkuvörn með vörubílum                      520 klst.

·                    Snjómokstur og hálkuvörn með vörubílum                 17.000  km

Verktími er frá 15. október 2007 til og með 15. maí 2010.

 

Tilboð opnuð 14.08.07.

Bjóðandi Tilboð kr. Hlutfall Frávik þús.kr.
Eyjólfur Sigurðsson 12.676.000 124,4 0
Áætlaður verktakakostnaður 10.187.000 100,0 -2.489

 

Eyjólfur Sigurðsson skilaði einnig inn frávikstilboði.