Opnun tilboða
Vitaferð 2015
Tilboð opnuð 28. apríl 2015. Leiga á skipi ásamt áhöfn til að flytja 3 starfsmenn Vegagerðarinnar hringinn í kringum Ísland til að þjónusta allt að 35 vita frá sjó ásamt vinnu við ljósdufl. Verktíminn er áætlaður um 13-15 dagar samfleytt í seinni hluta júnímánaðar.
Upphafstaður og endastaður er í Reykjavík.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Harður ehf., Patreksfirði | 49.600.000 | 356,0 | 40.487 |
Áætlaður verktakakostnaður | 13.933.576 | 100,0 | 4.821 |
Sigurbjörg Jónsdóttir ehf., Reykjavík | 9.112.783 | 65,4 | 0 |