Auglýst útboð

Yfirborðsmerkingar kantlínur 2018, Suðursvæði, Vestursvæði, Norðursvæði og Austursvæði

9.4.2018

Vegagerðin býður hér með út yfirborðsmerkingar akbrauta með málningu á öllum fjórum svæðum Vegagerðarinnar þ.e. Suðursvæði, Vestursvæði, Norðursvæði og Austursvæði. Um er að ræða málun kantlína á vegum með bundið vegyfirborð 2018.

Verkið er boðið út til eins árs, ekki er um möguleika á framlengingu verksamnings að ræða.

Helstu magntölur

Flutningur vinnuflokks .500 km
Málaðar kantlínur 2.000.000 m

Verki skal að fullu lokið 1. september 2018.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni  Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 9. apríl 2018. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.

Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 24. apríl 2018 og verða þau opnuð kl. 14:15 þann dag.