Auglýst útboð

Viðgerðir á malbikuðum slitlögum 2017-2019, höfuðborgarsvæðið

16.6.2017

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í viðgerðir á malbikuðum slitlögum á höfuðborgarsvæðinu árin 2017-2019.

Helstu magntölur eru áætlaðar á ári:

            Viðgerð með fræsun:  3.200 m2

            Viðgerð með sögun:       200 m2

            Viðgerð með íkasti:         450 m2

Verkinu skal að fullu lokið 31. desember 2019.

Útboðsgögnin eru seld hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og  með mánudeginum 19. júní 2017. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 4. júlí 2017 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 sama dag.