Auglýst útboð

Vetrarþjónusta 2018-2021, Vopnafjörður

9.4.2018

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í vetrarþjónustu árin 2018-2021 á eftirtöldum leiðum:

  • Norðausturvegur (85) frá 917-10 að Hafnarvegamótum í Bakkafirði 30 km.
  • Norðausturvegur (85) og Hlíðarvegur að flugvelli (917)  3,7 km.
  • Norðausturvegur (85) frá 917-10 og Hringvegur (1) að gatnamótum Möðrudals 69 km.
  • Hofsárdalsvegur (920) að Burstafelli 19 km.

Helstu magntölur eru:

  • Akstur mokstursbíla 41.340 km.  

Verkinu skal að fullu lokið 30. apríl 2021.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Búðareyri 7 á Reyðarfirði og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með þriðjudeginum 10. apríl  2018.  Verð útboðsgagna er 2.000 kr.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 24. apríl 2018 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 sama dag.