Auglýst útboð

Vetrarþjónusta 2018-2021, Vatnaleið og Snæfellsnesvegur

9.4.2018

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í vetrarþjónustu árin 2018-2021 á eftirtöldum leiðum:

  • Vatnaleið (56), frá Stykkishólmsvegi og yfir Vatnaleið, 23 km.
  • Stykkishólmsvegur (58), 9 km
  • Snæfellsnesvegur (54) frá Heydalsvegi að Staðarstað,  41 km
  • Snæfellsnesvegur (54) frá Stykkishólmsvegi að Narfeyri, 17 km

Helstu magntölur eru:

  • Akstur mokstursbíls 24.000 km  

Verkinu skal að fullu lokið 30. apríl 2021.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgarbraut 66 í Borgarnesi  og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 9. apríl  2018.  Verð útboðsgagna er 2.000 kr.

Skila skal tilboðum á sömu staði fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 24. apríl 2018 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 sama dag.