Auglýst útboð
Vetrarþjónusta 2017-2020, Ólafsvík-Vatnaleið
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í vetrarþjónustu árin 2017-2020 á eftirtalinni leið:
- Snæfellsnesvegur (54):
Ólafsvík – Vatnaleið, 45 km
Helstu magntölur á ári eru:
- Akstur mokstursbíls 13.700
km
Verkinu skal að fullu lokið 30. apríl 2020.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgarbraut 66 í Borgarnesi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með þriðjudeginum 20. júní 2017. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 4. júlí 2017 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 sama dag.