Auglýst útboð

Vestfjarðavegur (60) um Hvolsdal –breikkun og endurbætur

30.8.2017

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í breikkun og endurbyggingu 5,7 km kafla Vestfjarðavegar í Hvolsdal frá Brekkurétt og út fyrir Skriðuland, ásamt útlögn klæðingar og ræsagerð.

Helstu magntölur eru:

  • Fyllingar og fláafleygar                 62.200 m3
  • Skeringar                                        64.100 m3
  • Styrktarlag                                      20.000 m3
  • Burðarlag                                       13.400 m3
  • Tvöföld klæðing                            46.500 m2
  • Frágangur fláa                               84.200 m2

Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. september 2018.

Útboðsgögn verða seld á minnislykli hjá Vegagerðinni  Borgarbraut 66 í Borgarnesi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 4. september 2017. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.

 Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 19. september 2017 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.