Auglýst útboð

Vaðlaheiðargöng (1), stjórnkerfi

25.8.2017

Vegagerðin, f.h. Vaðlaheiðarganga hf., óskar eftir tilboðum í gerð stjórnkerfis í Vaðlaheiðargöng. Framkvæmdin sem hér um ræðir nær yfir gerð stjórnkerfis í Vaðlaheiðargöng en þau eru um 7,5 km löng, á milli Eyjafjarðar og Fnjóskadals. Stjórnkerfið hefur það hlutverk að fylgjast með ástandi í göngunum, skrá það, stjórna loftræsingu og láta vita af öllum bilunum og ef það skapast hættusástand. Innifalið í verkinu er smíði stjórn- og neyðarsímaskápa, iðntölvubúnaður, forritun búnaðarins  samkvæmt verklýsingu, prófun búnaðarins og gerð handbóka um kerfið.

Helstu magntölur verksins eru:          

  • a)      Stjórnskápar                    6 stk.
  • b)      Símaskápar                    15 stk.
  • c)      Símaklefar innrétting    16 stk.
  • d)      Iðntölvubúnaður           33 stýrivélar og fjar I/O
  • e)      Netbúnaður                   39 stk.                        
  • f)       Forritum stjórnkerfis samkvæmt kröfum
  • g)      Stýriteikningar fyrir stjórnskápa
  • h)      Prófun alls búnaðar
  • i)        Gerð handbóka um kerfið

Verki skal lokið að fullu 31. júlí 2018.

Útboðsgögn (á tölvulykli) verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá mánudeginum 28. ágúst 2017.  Verð útboðsgagna er 4.000 kr.

Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 26. september 2017 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 sama dag.