Auglýst útboð

Tímabundin salernisaðstaða á áningarstöðum 2018-2020

19.3.2018

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í tímabundna salernisaðstöðu á  tilteknum áningarstöðum Vegagerðarinnar yfir sumartímann á árunum 2018 - 2020. Verkefninu er skipt í sex landsvæði og eru áningarstaðir skilgreindir sérstaklega á hverju svæði fyrir sig. Bjóðandi getur gert tilboð í eitt svæði eingöngu eða fleiri. 

Útboðsgögnin verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og  með mánudeginum 19. mars 2018. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.

Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 4. apríl 2018 og verða þau opnuð þar 14:15 þann dag.