Auglýst útboð

Skagaströnd - flotbryggjur 2018

10.6.2018

Skagastrandarhöfn óskar eftir tilboðum í útvegun og uppsetningu á alls 80 m af steinsteyptum flotbryggjum með landgöngum, fingrum, botnfestum og  tilheyrandi búnaði.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. nóvember 2018.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka)   frá og með mánudeginum 11. júní 2018. Verð útboðsgagna er 5.000 kr.

Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 26. júní 2018 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.