Auglýst útboð

Siglufjörður – raflagnir í Bæjarbryggju 2016

18.7.2016

Hafnarsjóður Fjallabyggðar óskar eftir tilboði í raflagnir í Bæjarbryggju á Siglufirði.

 Helstu verkþættir eru:

  • · Ídráttur strengja og tenging rafbúnaðar.
  • · Smíði og uppsetning á töflum.
  • · Rafbúnaður í töflur.
  • · Uppsetning og tenging masturs- og stigaljósa.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 20. september 2016.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) og á skrifstofu Fjallabyggðar, Gránugötu 24 á Siglufirði, frá og með þriðjudeginum 19. júlí 2016. Verð útboðsgagna er 5.000 kr.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 3. ágúst 2016 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.