Auglýst útboð
Sementsfestun og þurrfræsing á Norðursvæði 20
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í sementsfestun og þurrfræsing á Norðursvæði 2018.
Helstu magntölur eru:
- Festun með
sementi 55.598 m2
- Þurrfræsing og jöfnun 25.654 m2
- Tvöföld klæðing 81.252 m2
- Efra burðarlag afrétting 2.950 m3
Útboðsgögnin eru seld hjá Vegagerðinni Miðhúsavegi 1 á Akureyri og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 9. apríl 2018. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 24. apríl 2018 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 sama dag.