Auglýst útboð

Landeyjahöfn, stálþil utan á ferjubryggju og skjólveggur

10.2.2017

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í að reka stálþil utan á hluta ferjubryggju og að reisa skjólvegg úr stálþilsplötum austan við Landeyjahöfn.

Helstu magntölur:

  • Stálþil utan á ferjubryggju: reka niður 8 stálþilsplötur ásamt frágangi á stiga og þybbum.
  • Skjólveggur: reka niður 61 stálþilsplötu.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 31. júlí 2017.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 13. febrúar 2017.   Verð útboðsgagna er 5.000 kr.

Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 28.febrúar 2017 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.