Auglýst útboð

Ísafjörður – Mávagarður - viðlegustöpull 2017

2.1.2018

Hafnir Ísafjarðarbæjar óska eftir tilboðum í ofangreint verk.

Helstu verkþættir og magntölur eru:

Á Ísafirði:

·         Reka niður 28 stk. af tvöföldum stálþilsplötum og ganga frá stögum.

·         Jarðvinna, upptekt á núverandi garði, fylling fyrir innan þil og grjótröðun við enda þils.

·         Steypa um 40 m langan kantbita með pollum, kanttré, stigum og þybbum.

Á Flateyri:

·         Djúpþjöppun við hafnarkantinn á Flateyri.

 Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. júní 2018.

 Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni, Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) og á skrifstofu Ísafjarðarbæjar, Stjórnsýsluhúsinu, 400 Ísafjörður frá og með miðvikudeginum 3. janúar 2018. Verð útboðsgagna er 5.000 kr.

 Skila skal tilboðum á sömu staði fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 17. janúar 2018 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.