Auglýst útboð

Húsavík – Bökugarður, hafnarsvæði, fylling, lagnir og malbikun

12.5.2017

Hafnarsjóður Norðurþings og framkvæmdadeild Norðurþings óska eftir tilboð í ofangreint verk.

 Helstu verkþættir eru:

  ·  Jarðvinna, efnisvinnsla og fyllingar, alls um 86.000 m3

  ·  Ídráttarrör fyrir rafmagn

  ·  Fráveitu- og regnvatnslagnir

  ·  Vatnslögn

  ·  Steypa undirstöðu undir vigt

  ·  Malbik, alls um 15.000 m2

  ·  Girðingar og hlið

  ·  Raforkuvirki

 Verkinu skal lokið eigi síðar en 30. nóvember 2017.

Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Norðurþings, Ketilsbraut 7 - 9, 640 Húsavík og hjá Vegagerðinni, Borgartúni 7, Reykjavík frá og með þriðjudeginum 16. maí 2017.

Verð útboðsgagna er 5.000,- kr.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 30. maí 2017  og kl. 14:15 sama dag verða tilboðin opnuð á sömu stöðum að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.