Hringvegur (1) Hveragerði – Biskupstungnabraut, hönnun
Vegagerðin, óskar eftir tilboði í for- og verkhönnun fyrir breikkun Hringvegar (1), frá Kambarótum að vegamótum Hringvegar og Biskupstungnabrautar, um 12 km. Á vegkaflanum skal hanna átta steyptar brýr og undirgöng, fimm bárustálsundirgöng, þar af ein ætluð til aksturs. Að lokum skal hanna tvenn tvöföld hringtorg, tvenn hliðfærð T-vegamót og hliðarvegi, göngu- og hjólreiðastíga, samtals um 9 km.
Verkið er boðið út á evrópska efnahagssvæðinu. Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðanda og verðtilboð.
Forhönnun skal lokið fyrir 9. janúar 2017
Verkhönnun og skilamati skal lokið fyrir 30. mars 2018
Útboðsgögn verða seld á hjá Vegagerðinni, Borgartúni 7, 105 Reykjavík (móttöku), frá og með mánudeginum 13. júní 2016. Gögnin verða afhent rafrænt á minnislykli. Verð útboðsgagna er 4.000 kr.
Tilboð skulu hafa borist til Vegagerðarinnar, á sama stað, eigi síðar en kl. 14:00 þriðjudaginn 19. júlí 2016, og verða þau opnuð þar sama dag kl. 14:15 og lesið upp hverjir hafa skilað inn tilboðum.
Síðari opnunarfundur verður haldinn að Borgartúni 7, 105 Reykjavík þriðjudaginn 26. júlí 2016 klukkan 14:15 þar sem lesin verða upp nöfn hæfra bjóðenda úr hæfnisvali og tilboðsupphæð af tilboðseyðublöðum.