Dettifossvegur (862), Dettifossvegur vestri - Súlnalækur
Vegagerðin býður hér með út gerð Dettifossvegar (862-02) frá Dettifossvegi vestri (886-01) og norður fyrir Súlnalæk.
Verkið felst í lagningu burðarlags og klæðingar á 7,72 km kafla, nýbyggingu vegar með klæðingu á 2,7 km kafla og nýbyggingu vegar upp að burðarlagi á 3,4 km kafla. Heildarlengd útboðskaflans er 13,82 km.
Helstu magntölur eru:
- Bergskeringar 3.650 m3
- Aðrar skeringar 163.000 m3
- Skeringar svarðlags 15.450 m3
- Fyllingar 166.290 m3
- Fláafleygar 45.820 m3
- Ræsalögn 487 m
- Endafrágangur ræsa 22 stk.
- Styrktarlag (neðra burðarlag) 36.040 m3
- Burðarlag (efra burðarlag) 17.390 m3
- Klæðing 78.700 m2
- Frágangur fláa 82.930 m2
- Frágangur hliðarsvæða 21.460 m2
Verklok eru 1. september 2018.
Útboðsgögnin verða seld hjá Vegagerðinni Miðhúsavegi 1 á Akureyri og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með þriðjudeginum 11. júlí 2017. Verð útboðsgagna er 4.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn
25. júlí 2017 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.