Norðausturvegur um Hólaheiði
Matsskýrsla, febrúar 2005
Mat á umhverfisáhrifum Norðausturvegar um Hólaheiði
Vegagerðin hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar matsskýrslu um Norðausturveg um Hólaheiði, Katastaðir-Sævarland-Raufarhöfn. Vegagerðin áformar að byggja um 56 km langan veg á milli Öxarfjarðar og Þistilfjarðar um Hólaheiði og Hófaskarð, með tengingu til Raufarhafnar. Vegurinn liggur um Öxarfjarðarhrepp og Svalbarðshrepp og verður hluti af Norðausturvegi nr. 85. Gert er ráð fyrir að skipta framkvæmdinni í þrjá áfanga. Fyrsti áfanginn er bygging vegar frá Katastöðum um Hólaheiði og Hófaskarð að Norðausturvegi ofan við Kollavík. Annar áfanginn er vegagerð frá Fjallgarðsmelum við Kollavík að Sævarlandi og sá þriðji er nýr vegur frá fyrsta áfanga á Hólaheiði, meðfram Ormarsá að Norðausturvegi við Hól og Höfða.
Tilgangur framkvæmdarinnar er að styrkja samgöngur milli byggðakjarna á Norðausturlandi, lágmarka akstursfjarlægð á milli þéttbýliskjarna og stuðla þannig að myndun eins þjónustusvæðis sem nær til Kópaskers, Raufarhafnar og Þórshafnar. Jafnframt á að auka umferðaröryggi og stuðla að greiðari samgöngum á svæðinu með því að leggja veg með hönnunarhraða 90 km/klst.
Mat á umhverfisáhrifum og gerð matsskýrslu er unnið af VSÓ Ráðgjöf og Vegagerðinni undir verkstjórn Vegagerðarinnar. Að verkefninu koma einnig aðilar með sérþekkingu á ýmsum sviðum, s.s. jarðfræði, gróðurfari, fuglalífi og veðurfari.
Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 2. mars til 13. apríl 2005 á eftirtöldum stöðum: Á skrifstofum Raufarhafnarhrepps, Svalbarðshrepps og Öxarfjarðarhrepps, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. Matsskýrslan er einnig aðgengileg á vef Vegagerðarinnar.
Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 13. apríl 2005 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.
Skýrslur og teikningar á pdf formi, stærð skráa í MB
Skýrsla, 2,7 MB | Matsskýrsla |
Teikning 1, 0,4 MB | Yfirlitskort |
Teikning 1b, 1,8 MB | Yfirlitskort |
Teikning 2-1, 1,3 MB | Framkvæmdayfirlit, áfangar 1 og 2 |
Teikning 2-2, 1,1 MB | Framkvæmdayfirlit, áfangar 1 og 2 |
Teikning 2-3, 2,0 MB | Framkvæmdayfirlit, áfangar 1 og 2 |
Teikning 2-4, 1,5 MB | Framkvæmdayfirlit, áfangar 1 og 2 |
Teikning 2-5, 1,5 MB | Framkvæmdayfirlit, áfangi 3 |
Teikning 2-6, 1,2 MB | Framkvæmdayfirlit, áfangi 3 |
Teikning 3-1, 1,0 MB | Valkostir við Katastaði |
Teikning 3-2, 0,7 MB | Valkostir við Álftatjörn |
Teikning 3-3, 0,7 MB | Valkostir við Daldrög |
Teikning 3-4, 0,7 MB | Valkostir við Kötluvíðra |
Teikning 3-5, 1,0 MB | Valkostir við Fremri Háls 1 |
Teikning 3-6, 0,8 MB | Valkostir við Fremri Háls 2 |
Teikning 3-7, 0,9 MB | Valkostir við Fremri Háls 3 |
Teikning 3-8, 0,8 MB | Valkostir við Raufarhafnarflugvöll |
Teikning 4, 3,4 MB | Jarðfræðikort |
Teikning 5, 1,8 MB | Skerðing víðernis |
Teikning 6-1, 0,3 MB | Gróðurkort af Hólaheiði |
Teikning 6-2, 0,6 MB | Gróðurkort af Raufarhafnarleið |
Teikning 6-3, 0,6 MB | Fundarstaðir sjaldgæfra plöntutegunda - Línstör |
Teikning 6-4, 0,5 MB | Fundarstaðir sjaldgæfra plöntutegunda - Álftalaukur |
Teikning 7-1, 0,5 MB | Fornleifar við Klapparós |
Teikning 7-2, 0,5 MB | Fornleifar við Katastaði |
Teikning 7-3, 0,6 MB | Fornleifar við Krossavíkursel |
Teikning 7-4, 0,6 MB | Fornleifar við Stóra Viðarvatn |
Teikning 7-5, 0,5 MB | Fornleifar við Hólssel |
Teikning 7-6, 0,5 MB | Fornleifar við Grasgeira |
Teikning 7-7, 0,6 MB | Fornleifar við vatnsból Raufarhafnar |
Teikning 7-8, 0,5 MB | Fornleifar við Höfða og Hól |
Teikning 8, 2,9 MB | Snjóflóðahættusvæði við Hófaskarð |
Teikning 9-1, 0,4 MB | Langsnið, Klapparós - Krossavík 1 |
Teikning 9-2, 0,3 MB | Langsnið, Klapparós - Krossavík 2 |
Teikning 9-3, 0,4 MB | Langsnið, Hófaskarð - Sævarland |
Teikning 9-4, 0,3 MB | Langsnið, Hólaheiði - Hóll |
Ljósmyndir, 2,3 MB | Ljósmyndir af landslagi |
Náttúrufarskönnun I, 2,3 MB | Skýrsla 1 frá Náttúrufræðistofnun Íslands |
Náttúrufarskönnun II, 0,4 MB | Skýrsla 2 frá Náttúrufræðistofnun Íslands |
Vatnsból og lindir, 0,4 MB | Vegagerð um vatnsverndarsvæði vatnsbóls Raufarhafnar - Skýrsla NÍ |
Vatnsból og lindir, 0,1 MB | Lindir og veglínur við Klapparós - Greinargerð NÍ |
Snjóhönnun, 4,3 MB | Ráðgjöf vegna snjóhönnunar - Greinargerð frá Orion |
Vindhraðakort , 1,8 MB | Yfirlitskort vindhermanna |
Vindhraðakort , 1,4 MB | Stóra Viðarvatn VNV-átt |
Vindhraðakort , 1,5 MB | Stóra Viðarvatn A-átt |
Vindhraðakort , 1,6 MB | Hófaskarð VNV-átt |
Vindhraðakort , 1,6 MB | Hófaskarð A-átt |
Fornleifakönnun, 1,9 MB | Skýrsla Fornleifastofnunar Íslands |
Fornleifakönnun, 0,1 MB | Kort 1 - Yfirlit |
Fornleifakönnun, 0,4 MB | Kort 2 |
Fornleifakönnun, 0,3 MB | Kort 3 |
Fornleifakönnun, 0,3 MB | Kort 4 |
Fornleifakönnun, 0,1 MB | Kort 5 |
Fornleifakönnun, 0,3 MB | Kort 6 |