Matsáætlanir
  • Vestfjarðavegur - Bjarkalundur - Melanes

Vestfjarðavegur (60) milli Bjarkalundar og Melaness í Reykhólahreppi, drög að tillögu að matsáætlun

4.7.2012

Vegagerðin auglýsir hér með drög að tillögu að matsáætlun vegna fyrirhugaðra framkvæmda á Vestfjarðavegi (60) milli Bjarkalundar og Melaness í Reykhólahreppi. Núverandi vegur er 41,6 km langur en nýr vegur verður 19,7-21,7 km langur, háð leiðarvali. Áætlanir eru um að meta umhverfisáhrif þriggja leiða, þ.e. D1, H og I.

Markmið framkvæmdarinnar er að bæta samgöngur um sunnanverða Vestfirði.

Drög að tillögu að matsáætlun eru kynnt á vef Vegagerðarinnar, samkvæmt reglugerð 1123/2005 um mat á umhverfisáhrifum.

Almenningur getur gert athugasemdir við áætlunina og er athugasemdafrestur til 7. ágúst 2012. Athugasemdir skal  senda með tölvupósti til kristjan.kristjansson@vegagerdin.is og helga.adalgeirsdottir@vegagerdin.is, eða til Vegagerðarinnar, Borgartúni 5-7, 105 Reykjavík.

Drög að tillögu að matsáætlun

Teikningar