Umferðarþjónusta - Tilkynning - 9.6.2018
Framkvæmdir á Höfuðborgarsvæðinu
Sunnudagskvöld og nótt 10.-11. júní er stefnt að því að fræsa og malbika Hringbraut frá gatnamótum við Vatnsmýrarveg í austur átt. Þrengt verður í eina akrein. Í framhaldi af því verður fræst og malbikað eina akrein á Miklubraut, frá gatnamótum við Kringlumýrarbraut að gatnamótum við Háaleitisbraut. Þrengt verður í eina akrein. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 18:00 og kl. 07:00.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
Tímabundin lokun vegna hjólreiðakeppni
Vegna hjólreiðakeppni laugardaginn 9. júní verður Krýsuvíkurvegur frá Hafnarfirði að afleggjaranum að Djúpavatnsleið (nr 428) lokaður á milli kl. 19:50 og 20:50. Einnig verður Bláalónsvegur (nr 426) lokaður á milli kl. 19:50 og 20:50.
Akstursbann á hálendisvegum
Akstursbann er nú á fjölmörgum hálendisvegum og -slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Því miður ber talsvert á því að ökumenn virði ekki merkingar um þessar lokanir sem settar eru á til að hlífa bæði vegunum sjálfum og náttúrunni í kringum þá fyrir átroðningi og skemmdum sem auðveldlega verða á þessum árstíma. Því er rétt að árétta að það er lögbrot að fara inn á veg framhjá merkinu allur akstur bannaður. Sjá nánar hér
Viðgerð á Miðfjarðarárbrú
Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.