Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 9.12.2017

9.12.2017 9:54

Færð og aðstæður

Hálkublettir eru nokkuð víða á Höfuðborgarsvæðinu og á Reykjanesbraut en snjóþekja á Sandskeiði og í Þrengslum. Hálka er á Hellisheiði.

Á Suður- og Vesturlandi er hálku eða hálkubletti nokkuð víða. 

Það er hálka, hálkublettir eða snjóþekja á vegum á Vestfjörðum.

Hálka eða hálkublettir eru á flestum vegum  á Norðurlandi. Dettifossvegur er lokaður.

Á Austurlandi er hálka, snjóþekja og hálkublettir.  Hálka eða hálkublettir eru með suðausturströndinni.

Breiðafjarðarferjan Baldur

Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og  á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.

Hálendisvegir

Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda á veginum.