Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 8.6.2018

8.6.2018 16:00

Framkvæmdir á Höfuðborgarsvæðinu

Í dag föstudaginn 8. júní er stefnt að því að fræsa og malbika hægri akrein á Reykjanesbraut við Vogaveg í átt að bænum. Þrengt verður um eina akrein og búast má við lítilsháttar umferðartöfum. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli 05:00 og 21:00.

Aðfaranótt laugardags 9. júní er stefnt að því að malbika ramp frá Bústaðarvegi niður Hafnarfjarðarveg. Þrengt verður í eina akrein á Kringlumýrarbraut og rampinum verður lokað. Búast má við lítilsháttar umferðartöfum. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli 18:00 og  07:00.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Tímabundin lokun vegna hjólreiðakeppni

Vegna hjólreiðakeppni laugardaginn 9. júní verður Krýsuvíkurvegur frá Hafnarfirði að afleggjaranum að Djúpavatnsleið (nr 428) lokaður á milli kl. 19:50 og 20:50. Einnig verður Bláalónsvegur (nr 426) lokaður á milli kl. 19:50 og 20:50.

Akstursbann á hálendisvegum

Akstursbann er nú á fjölmörgum hálendisvegum og -slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Því miður ber talsvert á því að ökumenn virði ekki merkingar um þessar lokanir sem settar eru á til að hlífa bæði vegunum sjálfum og náttúrunni í kringum þá fyrir átroðningi og skemmdum sem auðveldlega verða á þessum árstíma. Því er rétt að árétta að það er lögbrot að fara inn á veg framhjá merkinu allur akstur bannaður. Sjá nánar hér

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.